Heim / Homepage Tenglar / Links Orðalistar / Glossary Námsefni / Educational material Verkfæri / Tools Um vefinn / About this web mynd
 




Wikipedia Shqip   Wikipedia arabic   Wikipedia dansk   Wikipedia english
Wikipedia suomi   Wikipedia français   Wikipedia íslenska   Wikipedia 中文 (zhōngwén)
Wikipedia hrvatski   Wikipedia lietuvių kalba     Wikipedia norsk   Wikipedia português
Wikipedia polski   Wikipedia pусский язык   Wikipedia српски   Wikipedia español
Wikipedia philipine   Wikipedia ภาษาไทย   Wikipedia tiếng Việt    Wikipedia deutsch
wikipedia

 

VERKFÆRI

Á netinu eru margar veflausnir sem auðvelda samskipti, nám og kennslu.

mynd   Wikipedia - frjálsa alfræðiritið
Wikipedia er frjálst alfræðirit sem er búið til í samvinnu, með svokölluðu wiki kerfi. Mest af efni Wikipediu er komið frá notendum. Wikipediur eru til á fjölmörgum tungumálum.
 
mynd   Google translate - þýðingar á neti
Þýðingarvél Google translate getur þýtt fleiri en 50 tungumál.  Hægt er að þýða stutta texta, heilu vefsíðurnar og skjöl.  Þýðingarnar eru ekki gallalausar en margar hverjar merkilega góðar. 
 
mynd   Gegnir
Gegnir er bókasafnskerfi sem veitir aðgang að upplýsingum um safnkost flestra bókasafna landsins, t.d. háskólasafna, almenningssafna, sérfræðisafna og skólasafna.
 
mynd   Snara
Snara er vefbókasafn með uppflettiritum. Flest ritin eru orðabækur en auk þeirra má þar finna fjórtán skáldverk Halldórs Laxness, Samtíðarmenn 2003 og Matarást.
 
mynd   Vefþulan
Vefþulan er hjálpartæki sem les upphátt orð og texta á íslensku. Hægt er að afrita eða slá inn texta í Vefþuluna og hlusta á hann lesinn upphátt. Vefþulan getur einnig lesið texta sem valinn hefur verið á vefsíðum ef hún er sett upp í vefskoðara.
 
mynd   Forvo - framburðarvefur
Forvo er byggður upp af notendum og geymir fjölmörg framburðardæmi á ýmsum tungumálum. Hægt er að spila hljóðdæmin, vista þau sem mp3 skrár, eða tengja beint við aðra vefi.
 
mynd   Fjöltyngt lyklaborð
Með Gate2home er hægt að kalla fram og nota lyklaborð á fleiri en 60 tungumálum.
 
mynd   Audacity
Audacity er einfalt forrit sem hentar vel til hljóðvinnslu. Með viðbót við forritið má vista hljóðskrár sem mp3. Upplagt fyrir tungumálakennslu.
 
mynd   Vefur sfjalars
Á vef Sigurðar Fjalars Jónssonar má finna vísanir á margar gagnlegar og skemmtilegar veflausnir. Reglulega bætast við fréttir og upplýsingar um lausnir sem henta vel í námi og kennslu.